Úff hvað ég er eitthvað léleg að blogga...veit bara aldrei hvað
ég á að segja! Gerist ekkert hjá mér þessa dagana...ekkert sem
maður bloggar um allavegana
Er bara á fullu í vinnu og
skóla...jahh eða er svona að reyna að stunda skólann minn eitthvað!
Dáldið erfitt að leggja sig alla fram í söngskóla þegar maður er
alltaf kvefaður..!!
En ég er búin að ákveða hvaða píanó ég ætla að kaupa mér og á
bara eftir að ganga frá samningnum...hlakka ekkert smá til! Alveg
að verða svo fræg að eignast píanó
Fór í tvítugsafmælismatarboð hjá henni Brynhildi minni á
föstudaginn og fékk geggjaðan mat
Gleðskapurinn endaði svo niðrí
bæ með ýmsum hlæjilegum uppákomum...! Takk fyrir mig
Brynhildur
Svo var það bara vinna í Eikjuvogi alla helgina og afmæli hjá
Hákoni Kára í gær! En hann verður tveggja ára á föstudaginn..!!
Rosalega hlýt ég að vera orðin gömul...tíminn flýgur bókstaflega
frá mér
Annars ligg ég nú bara heima veik núna....eitthver fjandans
ælupest..!! Þoli ekki að komast ekki í vinnu....samviskubitið alveg
að drepa mig
Er að fara í eitthverja rannsókn út af bakinu á morgun....svo
var hringt í mig í morgun til þess að minna mig á hana og þá var
mér sagt að hún kosti eitthvað um 14 þúsund kall..!! Ég er nú
enginn milli....spurning hvort þetta sé þess virði???
Fékk útborgað í gær...hef aldrei átt svona mikinn pening þó svo
að hann sé alveg fáránlega lítill!!
og svo er hann líka nánast
horfinn í skólagjöld, lækniskostnað, píanó og fleira..!!
Eikjuvogs staffapartý á föstudaginn og svo "óvissuferð" með Kór
Langholtskirkju restina af helginni...nóg að gera
Það eru tveir krummar að tala saman fyrir utan gluggann hjá
mér...held þetta sé par því annar þeirra er með miklu bjartari
rödd....þeir fara í taugarnar á mér í augnablikinu!
Hmmm....veit ekki hvað ég á að segja meira! nema kannski,
Anna....fær maður komment við svona bloggi?? Kemur væntanlega í
ljós
Kristrún